Hobnail karafla - crystal
17.890 kr
Hvort sem það er appelsínusafi með morgunmatnum, vín, vatn, kakó, límónaði eða annað þá á þessi karafla eftir að setja punktinn yfir i-ið við matarborðið.
Að okkar mati er fátt skemmtilegra en að bjóða í matarboð og vera með fallega dekkað borð. Hobnail karaflan á eftir að stela senunni við borðið.
Karaflan er glæsileg, klassísk, vönduð og handfangið er sérstaklega þægilegt.
Karaflan er 100% handgerð og er búin til í fjölskyldufyrirtæki í Bohemia í Tékklandi. Kannan er úr Bohemian kristal sem er best þekktur fyrir að vera tær og glitra einstaklega fallega. Hver og ein kanna er einstök.
Kannan tekur allt að tvo lítra af vökva.
Kannan er blýlaus og má fara í uppþvottavél.
Þvermál: 19 cm
Hæð: 25 cm
Þyngd: 2 kg.