BLOGG

HOME DETAILS

HOME DETAILS

Ég breyti mjög oft til heima, þó það sé ekki nema bara að færa nokkra hluti til.
Um helgina var ég að dunda mér heima og tók nokkrar detail myndir sem mig langar til að deila með ykkur.

Blómapotturinn og hengið mun fást hér í vefverslun Purkhús á næstu vikum.

 

 

MIST spreykönnuna má finna hér

Kitchenaid áhöldin eru öll keypt í TARGET

Þessi fallegi blómapottur mun fást hér í vefverslun Purkhús á næstu vikum. Eins og ég sagði hér ofar breyti ég mikið til. Þessi blómapottur var þarna fyrr um daginn en svo var hann kominn í blómahengið seinna um daginn.

 DÍANA spegilin fá finna hér

DÍS blómavasinn er uppseldur eins og er en kemur aftur.

Þessi gulllitaði blómapottur og tréstandur eru væntanleg í vefverslun Purkhús á næstu vikum.

GLÓ skrautpokann má finna hér

HRING kertastjakann má finna hér
SAXI veggpuntið er uppselt en kemur aftur

HAKI leðurhankinn fæst hér

Þessi fallegi vasi er væntanlegur á næstu vikum í vefverslun Purkhús

 

Ég er frekar dugleg að deila myndum frá heimilinu á Instagram, ykkur er velkomið að fylgja mér þar instagram.com/sarabjorkp

Njótið sunnudagsins!

Kveðja,

Sara Björk

Lesa meira
Grænn innblástur🌾

Grænn innblástur🌾

Eins og ég hef áður nefnt þá finnst mér gaman að sækja innblástur fyrir heimilið á Pinterest.

Í síðustu viku tók ég saman nokkrar myndir af Pinterest sem heilluðu mig en það var allt í bleikum tónum. Ég er líka svo ótrúlega heilluð af grænum þessa stundina svo ég ákvað að gera líka eina græna færslu.

 

Grænar kveðjur,

Sara Björk

Lesa meira
Allt sem er bleikt bleikt...

Allt sem er bleikt bleikt...

Síðustu vikur hefur mig langað mikið til að lífga aðeins upp á íbúðina með því að mála einhverja veggi eða herbergi. Ég hef ekki látið verða að því ennþá en þeir litir sem ég er mest hrifin af þessa stundina eru bleikur, grænn og blár.

Ég skoða oft Pinterest til að fá innblástur þegar það kemur að heimilinu. Ég tók saman nokkrar bleikar myndir sem heilluðu mig.

Mig hefur lengi dreymt um baðherbergi í bleikum tónum.

Bleikar útidyrahurðar heilla mig mjög mikið. Einn daginn fæ ég vonandi bleika útidyrahurð!

 

 


Ég er mikið fyrir að hafa plöntur á heimilinu og mér finnst græni liturinn svo fallegur með þessum bleika.

Mig hefur líka lengi langað í bleikan sófa! Smart að hafa þá svona dökkan lit á veggjunum.

Bleikar kveðjur,

Sara Björk

Lesa meira
DIY jóladagatal

DIY jóladagatal

Það styttist í desember og því fannst mér tilvalið að skella í eina jóladagatals færslu, en það var að koma inn ný vara í vefverslunina sem er DIY jóladagatal.
Í pakkanum eru 24 stk. af fallegum bréfpokum. Í honum eru blandaðar tegundir af bréfpokum, gylltir, silfraðir, hvítir og brúnir eins og þið sjáið á myndunum hér neðar. Það fylgja 50 litlar tréklemmur með hverjum pakka. Mér fannst svo líka tilvalið að nota krítarlímmiðana vinsælu til að merkja hvern poka fyrir sig. 

Ég gerði tvær tilraunir í jóladagatalsgerðinni.

Jóladagatal á stiga

Ég notaði grátt garn til sem ég festi tréklemmurnar á.

Stiginn er keyptur í ILVA.
DIY jóladagatalið má finna hér á purkhus.is
Krítarlímmiðana má finna hér á purkhus.is
 

Jóladagatal á vírgrind


 
 
 
Grindin er úr BAUHAUS, fæst í drive-in sölunni.
Klemmurnar sem ég notaði hér fást hér á purkhus.is


Ég fór líka á pintrest og fann nokkrar skemmtilegar hugmyndir, læt þær fylgja með hér.

 
Jólakveðja,
Sara Björk Purkhús
Lesa meira
Innlit

Innlit - 38 fermetrar

Hér kemur smá innlit í litlu íbúðina okkar. Hún er ekki nema 38 fermetrar en plássið nýtist mjög vel en hluti íbúðarinnar undir súð svo það er ekki inni í fermetatölunni. Ég tók saman nokkrar myndir sem ég hef tekið af íbúðinni síðustu mánuði svo myndirnar eru ekki allar teknar á sama tíma og því smá breytingar á uppstillingum í hillum og fl.

STOFAN

 

 

 

ELDHÚSIÐ

 

SVEFNHERBERGIÐ

FATAHERBERGIÐ

BAÐHERBERGIÐ

SVALIRNAR

 

Endilega fylgið vefversluninni á instagram og facebook:

www.instagram.com/purkhus

www.facebook.com/purkhus 

Einnig getið þið fylgst með mér á instagram:

www.instagram.com/sarabjorkp 

Kær kveðja,

Sara Björk Purkhús

Lesa meira
17 results